Um Siglunes

Sumarvefur ÍTR 2011 - Siglunes

Siglunes er í raun ævintýramiðstöð við sjóinn þar sem hressum og kjörkuðum krökkum gefst kostur á að finna kröftum sínum og ævintýraþrá farveg. Á sumrin er boðið uppá siglinganámskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum  9–16 ára, auk námskeiða er boðið uppá siglingaklúbb fyrir 14–16 ára unglinga sem hafa reynslu af siglingum og öðru bátasporti. Siglunes er jafnframt með bátaleigu yfir sumarið sem er alla virka daga frá klukkan 13:00 - 16:00. Sumarið 2011 verður Siglunes lokað í ágúst.

Á sumrin starfa 12 starfsmenn í Siglunesi. Starfsfólk er á aldrinum 22-53 ára. Starfsfólk er fagfólk á vettvangi frítímans. Afar rík áhersla er lögð á þjálfun starfsfólks. Starfsfólk er þjálfað í notkun báta og búnaðar sem notaður er á námskeiðunum, skyndihjálp og hafa starfsmenn mikla þekkingu og reynslu á viðfangsefni námskeiðanna. Starfsfólk Sigluness leggur áherslu á að öllum þátttakendum í starfinu líði vel og að dagskrá námskeiðanna sé fjölbreytt, þroskandi og skemmtileg.

Myndir frá starfsemi Sigluness má finna á heimasíðu Nauthólsvíkur

Allar nánari upplýsingar um sumarstarf í Siglunesi er að finna á sumarstarfsvef ÍTR.

Til baka