Sumaropnun Ylstrandarinnar hófst í dag 15. maí.
Mánudaginn 23. apríl hefst skráning á hin vinsælu Siglinga- og róðrarnámskeið hér í Siglunesi. Námskeiðin eru fyrir börn og unglinga frá 9-16 ára. Þeim sem vilja nánari upplýsingar er bent á að fara á síðu Sigluness hér að ofan.
Föstudagurinn langi: Lokað
Annar í páskum: Opið kl. 17:00-19:00
Haukur Bergsteinsson synti sína fimmhunduðustu ferð á Ylströndinni Nauthólsvík síðastliðinn föstudag. Honum var vel fagnað með kökum og kakói í pottinum.
Opnunartími Ylstrandarinnar er sem hér hljóðar:
Mánudagar frá kl. 17-19
Miðvikudagar frá kl. 11-13 og 17-19
Föstudagar frá kl. 11-13
kv. Starfsfólk Ylstrandarinnar
Opnunartími um Jól og áramót á Ylströndinni eru eftirfarandi.
Annan í jólum mánudaginn 26. desember - Lokað
Miðvikudaginn 28. desember opið kl. 11 - 13 og 17 - 19.
Nýársdag sunnudaginn 1. janúar verður opið milli kl. 11 - 13.
Mánudaginn 2. janúar verður opið milli kl. 17 - 19.
Jóla og nýárskveðja,
starfsfólk Ylstrandar
Dagskrá Jólabókaflóðs Ylstrandar 2011 er eftirfarandi.
Miðvikudaginn 14. desember kl. 17:15 mun Óttar M. Norðfjörð lesa upp úr bókinni Lygarinn. Kl. 17:30 mun Hildur Knútsdóttir lesa upp úr bókinni Slætti.
Miðvikudaginn 21. desember kl. 12:10 mun Baggalútur kynna verk sín Týndu jólasveinarnir og Riddararaddir.
Miðvikduaginn 21. desember kl. 17:30 mun Yrsa Sigurðardóttir lesa upp úr Brakinu sem er ein söluhæsta bók landsins í dag.
Jólabókarkveðja,
starfsfólk Ylstrandar
Miðvikudaginn 14. desember hefst Jólabókaflóð Ylstrandar með upplestrum þeirra Óttar M. Norðfjörðs og Hildi Knútsdóttur. Þau munu lesa upp í kvöldopnun Ylstrandar milli kl. 17 - 19.
Hildur Knútsdóttir gaf út bókina Sláttur fyrr á þessu ári og fékk bókin góðar viðtökur.
Breyting verður á sumaropnunartíma Ylstrandar í ágúst
Hið árlega sumargrill Krafts verður haldið í dag hér á Ylströndinni frá klukkan 16-19. Frábær dagskrá í boði fyrir alla.