Áhorfendur fyldust spenntir með


Síðastliðin laugardag, þann 24. júlí, fór fram íslandsmótið í Strandhandbolta hér í Nauthólsvík. Alls voru 16 lið skráð til leiks, 8 kvennalið og 8 karlalið. Á mótinu mátti sjá nokkur þekkt handboltaandlit eins og Bjarna Fritzson, Sturlu Ásgeirsson, Björgvin Hólmgeirsson og Hrafnhildi Skúladóttur.

Í sól og sumaryl | 23.07.2010


Það lék veðurblíða um landann síðastliðna viku og fjöldi fólks nýtti sér góða veðrið til þess að sóla sig í blíðunni hér í Nauthólsvík. Ljósmyndarar Ylstrandar skelltu sér út á meðal fólksins með myndavél og smelltu af nokkrum myndum, en afrakstur þess má sjá í myndasafni.

Siglunes
Klúbbararnir okkar | 13.07.2010


Mánudaginn 12. júlí fóru klúbbarar í Siglunesi í kajakferð, ferðinni var heitið í Kópavog og þar fengu þeir sér flugferð af bryggjunni í höfnina. Steinar ofurklúbbastarfsmaður gerði myndband um athæfið sem hægt er að sjá það hér: http://www.youtube.com/watch?v=6AfHoDqp3QE Almennileg skemmtun þetta ;)

Torfi og Heiða í léttu spjalli um Ylströndina


Blaðamaður netmiðilsins Vísis átti leið um Ylströndina nú í morgun og átti létt spjall við tvo af starfsmönnum Ylstrandarinnar, þau Torfa og Heiðu. Áhugasömum er bent á að heimsækja http://www.visir.is/rennandi-blaut---myndband/article/2010289182066 og sjá hvað þeim fór í milli.

Finnur og félagar vígja pönnuna með stæl


Nú býður Ylströndin gestum og gangandi að leigja eina af hinum geysivinsælu finnsku Muurikka pönnum. Pannan er leigð út með gasbrennara og gaskút og er leigugjaldið á hvern klukkutíma einungis 1000 kr.-

Fjör á írskum dögum


RISA SUMARHVELLUR Í NAUTHÓLSVÍK Á MIÐVIKUDAG STÓRTÓNLEIKAR, SEGWAY RALL, PYLSUR OG DRYKKUR HANDA ÖLLUM. FOSSVOGS SJÓSUND OG STRANDFÓTBOLTI Sumarhvellur Kanans og Símans verður á ferðinni í Nauthólsvík / Ylströndinni á miðvikudag frá 16:00 til 19:00. Dagskráin verður ekki af verri endanum. Það verða Risa útitónleikar með hljómsveitunum og söngfólki. Meðal þeirra sem koma fram eru Elektra, Jónsi í Svörtum fötum, Haffi Haff, Íslenska Sveitin, Friðrik Dór, Skítamórall, Buff strákarnir, Jón Jónsson og Magni.

Fossvogssund | 05.07.2010


Miðvikudaginn næstkomandi, þann 7. júlí, stendur Sjósunds- og og sjóbaðsfélag Reykjavíkur (SJÓR) fyrir Fossvogssundi. Þá verður synt yfir Fossvoginn og til baka að nýju. Til þess að fyllsta öryggis sé gætt þá verða bátar með í för og þar af leiðandi ættu allir að geta tekið þátt.


Hópar frá frístundaheimilunum Neðstalandi og Sólbúum mættu á Ylströndina miðvikudaginn 30. júní og öttu kappi í hinni svokölluðu WipeOut keppni. Þar fengu krakkarnir að spreyta sig á stórri og krefjandi þrautabraut sem hver og einn þurfti að ljúka á sem skemmstum tíma. Eins og við var að búast stóðu þau sig öll feiknavel og viljum við hvetja alla til að kíkja á myndir frá atburðinum í myndasafni Nauthólsvíkur hér á síðunni.

Stórstreymt í lok ágúst 2010
Flóðatafla | 02.07.2010


Verið er að vinna í uppfærslu á flóðatöflu sem birtist á heimasíðu okkar. Hægt er að sjá 4 daga fram í tímann.

Ísleifur slær á létta strengi með hressum fastagestum.
Nýjar myndir | 02.07.2010


Uppfærsla við heimasíðu hefur verið í fullum gangi undanfarna daga og því fjölmargar nýjar og gamlar myndir komnar inn. Njótið vel. Ljósmyndakveðja, starfsfólk Ylstrandar.