Áminning! | 16.05.2011


Minnum á að Ylströndin er opin alla daga frá 10-19.


Í dag, 12.maí komu börn frá Hafnarfirði að heimsækja okkur hér í Nauthólsvíkina. Það blés frekar köldu en börnin létu það ekki á sig fá. Þá voru grillaðar pylsur í hádeginu og allir skemmtu sér konunglega... Opna hér til að sjá myndir


Sumaropnun Ylstrandarinnar hefst núna á laugardaginn 14.maí og mun þá vera opið alla daga frá 10-19.

íslenska


Gull og silfur æ ég er, einnig landnámskona. Næstum allir eftir mér, ætíð bíða og vona.


Hver er sú sem hleypur án þess að færast úr stað, er skilin án þess að geta talað og er áberandi drukkin á hverjum degi?

Gáta dagsins | 02.05.2011


Vegir margir mætast hér. Mörgum sinnum haldið er. Oft á tíðum á það fer. Er á milli liða þér.


Í tilefni dagsins báru starfsmenn Ylstrandar kórónu á höfði til heiðurs hinu konunglega brúðkaupi sem fer fram í dag í Englandi. Þótti tilvalið að smella inn hérna einni mynd af herlegheitunum.

Gömul gáta | 27.04.2011


Ólöglegt ég alltaf verð Atriði í bókagerð Ber mig vel í buxunum Birt er oft í prósentum.

Gáta dagsins | 25.04.2011


Allir reyna að elta það. Óðfúsir að taka það. Fáir þeir sem finna það. Fæstum létt að greiða það.


Sjávarhiti um þetta leyti síðustu árin í samanburði við daginn í dag. Smellið á til að skoða