Sólin í Nauthólsvíkinni situr sem fastast og sandurinn býður upp á fjöruga listsköpun. Grillin eru opin almenningi og hægt er að koma með mat að heiman eða kaupa sér pulsu á staðnum til að skella á kolin, einnig er nóg til af svellköldum ís í sjoppunni til að kæli sig niður með. Hér er norðan 3 m/s, lofthiti 15°C klukkan 11.00 og fer hækkandi og sjávarhiti 15.6°C.
Fimmtudagskeppni Sigluness var haldin í fyrsta skipti í gær og var þátttaka með ólíkindum. Keppt var í opnum flokki með forgjöf og verður keppninni framhaldið vikulega í sumar.
Siglingaklúbburinn Siglunes í Nauthólsvík starfrækir á tímabilinu 10. júní - 13. ágúst bátaleigu og er hún opin alla miðvikudaga og fimmtudaga milli kl. 16 - 19. Á leigunni gefst fólki kostur á að leigja árabát, kajak, kanó og fleirri skemmtilega báta fyrir 600 kr. á klst.
Fyrsta Íslandsmóti Sundsambands Íslands í sjósundi er lokið, en mótið fór fram í Nauthólsvík í blíðviðrinu í gær. Keppendur voru 65, alls 20 konur og 45 karlar
Í dag er rjómablíða á Ylströndinni og hvetjum við alla til að skunda á staðinn og njóta hennar. Hér er norðan 2,2 m/s, lofthiti 15°C og sjávarhitinn er 15.6°C.
Miðvikudaginn 15. júlí heldur Sundsamband Íslands Íslandsmót í sjósundi í samvinnu við Securitas. Keppnin fer fram í Fossvoginum við Nauthólsvík og hefst stundvíslega kl. 17:00. Í boði verða tvær keppnisvegalengdir: 1km og 4km.
Föstudaginn 15. maí hófst sumaropnun Ylstrandar og verður opnunartími alla daga kl. 11.00–19.00. Í boði eru búningsklefar, sturtur, heitir pottar, sandleikföng og afnot af gasgrilli án endurgjalds. Einnig er til sölu kaffi, gos, sælgæti, ís, pylsur til að grilla og ýmislegt annað góðgæti.