Vegir margir mætast hér.
Mörgum sinnum haldið er.
Oft á tíðum á það fer.
Er á milli liða þér.
Í tilefni dagsins báru starfsmenn Ylstrandar kórónu á höfði til heiðurs hinu konunglega brúðkaupi sem fer fram í dag í Englandi. Þótti tilvalið að smella inn hérna einni mynd af herlegheitunum.
Ólöglegt ég alltaf verð
Atriði í bókagerð
Ber mig vel í buxunum
Birt er oft í prósentum.
Allir reyna að elta það.
Óðfúsir að taka það.
Fáir þeir sem finna það.
Fæstum létt að greiða það.
Sjávarhiti um þetta leyti síðustu árin í samanburði við daginn í dag. Smellið á til að skoða
Tré og blómi er ég á,
oft til skrauts á þili.
Margir hjá mér fréttir fá.
Fest er ég við kili.
Föstudagurinn Langi: LOKAÐ
Mánudagurinn Annar í Páskum: OPIÐ frá 17-19
GLEÐILEGA PÁSKA!
Ég er nytsamlegur hlutur og þú togar oft í mig. Það gengur vel ef þú ferð varlega,annars stansa ég stundum og fer út af brautinni. Hver er ég?
Í dag mættu útivistarhópur Vogaskóla í annað sinn núna á stuttum tíma og létu flestir sig vaða í sjóinn með bros á vör. Alltaf ánægjulegt að sjá svona sjósundsmetnað hjá unga fólkinu. Takk fyrir komuna! Kíkið endilega á myndirnar hér á síðunni!
1.Hvað getur svarað öllum spurningum, og það á öllum tungumálun?
2.Hvað er það sem maður fær vanalega gefins tvisvar en þarf að borga fyrir í þriðja sinn?