05.01.2010
Gerður Kristný og jólaljóðin
Á Þorláksmessu bauð starfsfólk Ylstrandar gestum uppá heitt súkkulaði, smákökur, konfekt og ljúfan ljóðaupplestur. Gerður Kristný kom og flutti ljóð sem hún hafði samið til styrktar sölu á jólaóróa styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Þökkum við Gerði Kristnýju fyrir hennar góða framlag og gestum fyrir komuna.