05.07.2010
Sumarhvellur Kanans og Símans
RISA SUMARHVELLUR Í NAUTHÓLSVÍK Á MIÐVIKUDAG
STÓRTÓNLEIKAR, SEGWAY RALL, PYLSUR OG DRYKKUR HANDA ÖLLUM.
FOSSVOGS SJÓSUND OG STRANDFÓTBOLTI
Sumarhvellur Kanans og Símans verður á ferðinni í Nauthólsvík / Ylströndinni á
miðvikudag frá 16:00 til 19:00. Dagskráin verður ekki af verri
endanum. Það verða Risa útitónleikar með hljómsveitunum og söngfólki.
Meðal þeirra sem koma fram eru Elektra, Jónsi í Svörtum fötum, Haffi
Haff, Íslenska Sveitin, Friðrik Dór, Skítamórall, Buff strákarnir,
Jón Jónsson og Magni.
Það er svo sannarlega ekki það eina sem verður til skemmtunar því
Segway Rallið verður á sínum stað. Gestir fá gefins blöðrur, boli,
fótbolta, límmiða í bílinn og margt fleira. Síðan verður kveikt upp í
Risagrilli og grillaðar Goðapylsur. Allir fá svo Fanta og Svala með
grillinu.
Á sama tíma fer fram Fossvogssundið sem er samstarf sjósunds- og sjóbaðsfélag Reykjavíkur / Sjór, LYFJU og starfsfólks Siglunes og Ylstrandar. Búist er við miklum fjölda gesta þar sem sjósund er í stöðugri sókn og gríðarlega vinsælt.
DAGSKRÁ TÓNLEIKANA -
16:45 - Elektra
17:00 - Jónsi í Svörtum fötum
17:15 - Haffi Haff
17:30 - Íslenska Sveitin
18:00 - Friðrik Dór
18:15 - Skítamórall
18:30 - Buff strákarnir og Magni
18:45 - Jón Jónsson
Það verður magnað fjör á Ylströndinni á miðvikudag.
Sumarhvellskveðja, starfsfólk Ylstrandar.