10.07.2010

Muurikka panna til leigu á Ylströndinni

Nú býður Ylströndin gestum og gangandi að leigja eina af hinum geysivinsælu finnsku Muurikka pönnum. Pannan er leigð út með gasbrennara og gaskút og er leigugjaldið á hvern klukkutíma einungis 1000 kr.-

Muurikka pannan kemur, eins og áður segir, frá Finnlandi en þar ku hvert heimili eiga eina slíka til þess að brúka á mannamótum.  Pönnurnar eru örlítið íhvolfar að lögun, sem gerir það að verkum að auðvelt er að steikja á þeim kjöt, fisk og grænmeti á sama tíma.

Muurikka pönnuna má nálgast í afgreiðslu Ylstrandarinnar og nú er um að gera að nýta sér þetta einstaka tækifæri til þess að prófa eitthvað nýtt og krydda upplifunina af ströndinni.

Nánari upplýsingar um Muurikka má finna á www.muurikka.is

Með sumar- og eldamennskukveðju
Starfsfólk Ylstrandar