23.07.2010
Í sól og sumaryl
Það lék veðurblíða um landann síðastliðna viku og fjöldi fólks nýtti sér góða veðrið til þess að sóla sig í blíðunni hér í Nauthólsvík. Ljósmyndarar Ylstrandar skelltu sér út á meðal fólksins með myndavél og smelltu af nokkrum myndum, en afrakstur þess má sjá í myndasafni.
Það hefur einnig verið nokkuð um skipulagða atburði síðastliðnar vikur, en sem dæmi má nefna Fossvogssundið, Íslandsmót Securitas í sjósundi og í gær (fimmtudag) stungu vaskir/ar kappar og kempur sér í sjóinn og syntu frá Bessastöðum til Nauthólsvíkur. Á laugardag fer síðan fram íslandsmót í strandhandbolta.
Starfsfólk Ylstrandar þakkar öllum þeim sem hafa lagt leið sína í Nauthólsvíkina í sumar kærlega fyrir komuna og vonumst við til að sjá sem flesta það sem eftir lifir sumars.
Með sól- og sumarkveðjum