25.07.2010
Íslandsmótið í Strandhandbolta
Síðastliðin laugardag, þann 24. júlí, fór fram íslandsmótið í Strandhandbolta hér í Nauthólsvík. Alls voru 16 lið skráð til leiks, 8 kvennalið og 8 karlalið. Á mótinu mátti sjá nokkur þekkt handboltaandlit eins og Bjarna Fritzson, Sturlu Ásgeirsson, Björgvin Hólmgeirsson og Hrafnhildi Skúladóttur.
Það var lið Breiðholtsins sem stóð uppi sem sigurvegari að mótinu loknu. Ljósmyndarar Ylstrandar lágu sem fyrr í leyni og smelltu af nokkrum myndum. Afrakstur þess gefur að líta í Myndasafni.
Með strandhandboltakveðju
Starfsfólk Ylstrandar