28.07.2010

Kubbur

Sú nýjung er nú í boði á Ylströndinni að hægt er að leigja hið klassíska og sískemmtilega spil Kubb. Nú er um að gera fyrir fjölskyldur eða hópa að mæta á ströndina, sleikja sólina (því hér er nánast alltaf gott veður), etja kappi í Kubbi og njóta þeirra sumardaga sem eftir eru. Hér er um að ræða bæði hinn klassíska Kubb, sem og "Number"-Kubb.

Kubb-spilið er hægt að nálgast í afgreiðslu Ylstrandar. Við afhendingu leggja leigendurnir 500 kr.- inn sem tryggingu og þegar spilinu er skilað fær fólk 300 kr.- tilbaka. Þannig að leigan á spilinu, í ótakmarkaðan tíma, er einungis 200 kr.-

Í afgreiðslu Ylstrandar er einnig hægt að leigja fótbolta og blakbolta og sú leiga gengur á sama hátt fyrir sig.

Með Ylstrandarkveðju
Starfsfólk Ylstrandar