21.06.2011

Þjóðhátíðardagur Grænlendinga haldinn hátíðlegur

Í dag 21. júní er Þjóðhátíðardagur Grænlendinga sem og sumarsólstöður. Hátt í 70 Grænlendingar tóku sig til og fjölmenntu hingað á Ylströndina.

Þau mættu með þvílíkar kræsingar á grillið, alls konar kjöt með salötum og sósum sem allir borðuðu með bestu lyst. Það var meira að segja smá afgangur sem við starfsmenn Nauthólsvíkur fengum að „hjálpa“ þeim við að klára.

Veðrið var alveg yndislegt, glampandi sól og næstum alveg logn á pallinum. Flestir fóru í pottinn eftir matinn, en aðrir grilluðu sykurpúða á grillunum. Það má með sanni segja að lyktin af kjötinu og sykurpúðunum sem kom af grillunum gerðu aðra gesti hungraða í grillmat, og seldum við pylsur eins og heitar lummur.

Öll þessi aðstaða er að sjálfsögðu ókeypis, þ.e. grillin og potturinn og allt sem við bjóðum upp á. Þetta er því frábær aðstaða  fyrir litla sem og stóra hópa til að koma og halda upp á viðburði, hvort það er afmæli eða sjálfur Þjóðhátíðardagurinn :)