25.06.2011
Leikjadagur ÍTR
Leikjadagur ÍTR verður haldinn hér í dag frá klukkan 13 til 16 í tilefni af 25 ára afmæli ÍTR. Þá mun starfsfólk ÍTR gleðjast með borgarbúum í skemmtilegum, spennandi og öðruvísi leikjum og fjölbreyttri afþreyingu. Heiti dagsins er ætlað að undirstrika vægi leiksins í starfi ÍTR.
Ylströndin var nýlega að fá ný leiktæki á ströndina (sjá myndir). Klifursteinar og sandkassi í laginu eins og skip. Sandkassinn er hugsaður sem meira afmarkað leiksvæði fyrir yngstu kynslóðina frekar en að hlaupa um alla strönd með foreldrana á hælum sér.
Einnig munum við setja út strand-bandí og leikina Númera Kubb, venjulegan Kubb og Ringó. Leiðbeiningar með leikjunum verða á staðnum.
Hlökkum til að sjá sem flesta í dag!

Klifursteinarnir

Sandkassinn