30.06.2011

Sumargrill Krafts

Hið árlega sumargrill Krafts verður haldið í dag hér á Ylströndinni frá klukkan 16-19. Frábær dagskrá í boði fyrir alla.

Lilli klifurmús og Mikki refur úr Leikhópnum Lottu munu stíga á svið. Bjarni töframaður sýnir listir sýnar ásamt því að Hreimur og Vignir og félagar úr Vinum Sjonna taka lagið. Svo verður hoppikastali fyrir börnin.

Gefnar verða pulsur, hamborgarar og ís, og við minnum á að öll aðstaða okkar hér á Ylströndinni, pottar, búningsklefar og sturtur, er að sjálfsögðu ókeypis. Og vegna þess hversu æðislegt veðrið er í dag ætlum við að hafa opið til 20:00 í dag, frekar en 19:00 eins og venjulega.

Veðrið er svo alveg frábært; 14°C hiti úti, sjórinn kominn upp í 12,7°C samkvæmt mælingum okkar í morgun.

Hlökkum til að sjá sem flesta! :)

 

Mynd síðan síðasta sumar. En svona er veðrið núna! :o)