09.12.2011
Jólabókaflóð Ylstrandar 14. desember
Miðvikudaginn 14. desember hefst Jólabókaflóð Ylstrandar með upplestrum þeirra Óttar M. Norðfjörðs og Hildi Knútsdóttur. Þau munu lesa upp í kvöldopnun Ylstrandar milli kl. 17 - 19.
Hildur Knútsdóttir gaf út bókina Sláttur fyrr á þessu ári og fékk bókin góðar viðtökur.


Óttar M. Norðfjörð ætlar að lesa upp úr nýju bókinni sinni Lygarinn fyrir gesti Ylstarandar.


Við hlökkum til að hlýða á ljúfan lestur.
Jólabókaflóðskveðja, starfsfólk Ylstrandar