19.03.2012

500 ferðir í Nauthólsvík

Haukur Bergsteinsson synti sína fimmhunduðustu ferð í sjónum á Ylströndinni Nauthólsvík síðastliðinn föstudag. Honum var vel fagnað með kökum og kakói í pottinum.

Haukur verður 76 ára í vor og er þetta því mikill árangur. Hann hefur stundað þetta í fjögur ár og hefur enga löngun í að hætta.

Hann mætir oftast þrisvar í viku og þið sem hafið séð hann á ströndinni sjáið að hann fær alltaf afhent kakó í pottinn þegar hann kemur upp úr sjónum af starfsmanni. Það fékk hann í afmælisgjöf fyrir nokkrum árum og hlakka aðrir gestir mikið til að fá slíka afmælisgjöf, enda þvílíkur lúxus að fá heimsendingu á heitum drykk í pottinn eftir kaldan sundsprett í sjónum.

Haukur var mjög upp með sér þegar hann kom á föstudaginn því starfsmenn Ylstrandarinnar höfðu hringt í bæði Morgunblaðið og RÚV, enda stórviðburður í gangi. Hér er hægt að sjá viðtal við Hauk á mbl.is en auk þess var stórt viðtal sem kom fram í laugardags-Mogganum. Hér er hægt að sjá viðtalið sem kom í fréttunum á föstudaginn.

Hér fylgja myndir af Hauki í gegnum árin. Njótið.

 

Grein: Heiða Kristín