Sjósund

Sjósund nýtur vaxandi vínsælda og þykir það einstaklega gott fyrir áhugafólk um sjósund að nýta sér aðstöðu Ylstrandar allt árið. Starfsmenn Ylstrandar reyna eftir fremsta megni að gefa sjósundsfólki góð ráð en þó má sérstaklega taka fram að reyndir sjósundkappar eru bestir í að gefa góð ráð. Starfsfólk Ylstrandar hefur frá byrjun árs 2009 unnið að leiðbeiningum fyrir sjósund og má sækja textann "Ráðleggingar til sjósundfólks" hér.

Góðar upplýsingar um ofkælingu eru á heimasíðu Landlæknisembættisins http://influensa.is/pages/1203 .

Sjósund er spennandi og ögrandi íþrótt með mikilli áskorun. Margir þeir sem prufa og stunda sjósund eru að sækja í áskorun sem þessa.

Starfsfólk Ylstrandar getur ekki með nokkru móti tryggt öryggi gesta í sjónum.

Til baka