Siglinganámskeið 9-12 ára sumar 2013
SIGLINGAR OG RÓÐUR FYRIR 9-12 ÁRA F. 2001-2004
Siglinganámskeið eru frá kl. 9.00-12.00 og kl. 13.00-16.00, mánudaga til föstudaga.
Markmið siglinganámskeiðsins er að þátttakendur læri helstu grunnatriði siglinga og róðurs.
Um námskeiðið: Spennandi og skemmtilegt námskeið þar sem þátttakendur læra tökin á a.m.k. 6 mismunandi bátum, læra um öryggisatriði og notkun björgunarvesta. Námskeiðið er hlaðið spennu og ævintýrum. Þátttakendur munu takast á við nýjar og spennandi áskoranir á hverjum degi.
Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem vilja gerast félagar í Vatnasportklúbbi Sigluness.
Bátar: Siglt er á vélbátnm Jónasi feita, seglskútunni Gullu grönnu, litlum seglbátum, kayökum, opnum kayökum og árabátum.
Farið verður í ævintýralegar sjóferðir á bátum siglingaklúbbsins í nágrenni Nauthólsvíkur. Siglt er og róið hvernig sem vindur blæs enda er mikilvægt að geta stjórnað bát við mismunandi aðstæður. Siglinganámskeiðin eru krefjandi, hressandi og skemmtileg og lögð er mikil áhersla á siglingar og leiki í góðum félagsskap.
Þátttakendur þurfa að vera klæddir hlýjum og skjólgóðum fötum og hafa meðferðis aukaföt og nesti.
Athugið! Mikilvægt er að merkja allan fatnað með nafni og síma eiganda. Mikið af fötum týna eigendum sínum í Siglunesi og auðveldar það leitina af týndu flíkinni mjög mikið ef fötin eru merkt.
Dagssetningar kl. 9:00-12:00:
10.6.-14.6., 18.6.-21.6*., 24.6.-28.6., 1.7.-5.7., 8.7.-12.7., 15.7.-19.7., 22.7.-26.7., 29.7.-2.8.
35 þátttakendur á námskeiði.
Dagssetningar kl. 13:00-16:00:
10.6.-14.6., 18.6.-21.6*., 24.6.-28.6., 1.7.-5.7., 8.7.-12.7., 15.7.-19.7., 22.7.-26.7., 29.7.-2.8.
35 þátttakendur á námskeiði.
Verð:
5 dagar 5.930 kr.
*4 dagar 4.770 kr.
Skráning á siglinganámskeið
Sótt er um sumarnámskeið ÍTR á rafrænu formi á vefslóðinni Rafrænni Reykjavík.
Athugið að ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir farið á frístundamiðstöðvar ÍTR (helst fyrir hádegi) og á þjónustumiðstöðvar hverfanna og fengið aðstoð með skráningu. Ekki er hægt að skrá börn á sumarnámskeið í gegnum síma. Þjónustumiðstöðvar, frístundamiðstöðvar og Símaver Reykjavíkurborgar (s. 411 11 11) geta þó leiðbeint símleiðis ef forráðamenn eru við nettengda tölvu.
Upplýsingar fyrir foreldra.
Til baka