Siglinganámskeið 13-16 ára sumar 2011

Siglingar og róður fyrir börn fædd ´95 - ´98
Markmið námskeiðs: Að þátttakendur læri helstu grunnatriði siglinga og róðurs.

Um námskeiðið: Spennandi og skemmtilegt námskeið þar sem þátttakendur læra tökin á amk. 7 mismunandi bátum, læra um öryggisatriði og notkun björgunarvesta. Námskeiðið er hlaðið spennu og ævintýrum. Þátttakendur munu takast á við nýjar og spennandi áskoranir á hverjum degi. Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem vilja gerast félagar í Vatnasportklúbbi Siglunes. Námskeiðin eru öll eftir hádegi.

Bátar: Siglt er á vélbátnum Jónasi feita, seglskútunni Gullu grönnu, litlum seglbátum, kayökum, opnum kayökum, kanóum og árabátum.

Dagssetningar:
6.6.-10.6., 14.6.-16.6*., 20.6.-24.6., 27.6.-1.7., 4.7-8.7., 11.7.-15.7., 18.7.-22.7. og 25.7.-29.7.
Kl. 13:00-16:00.

Því miður er uppselt á öll námskeið fyrir 13-16 ára út sumarið 2011

5 dagar.
10 þátttakendur á námskeiði.
Verð: 5.000 kr.
*3dagar 3.000 kr.

Skráning á Rafrænni Reykjavík frá og með 2. maí.

Upplýsingar fyrir foreldra.

Til baka