Siglingaklúbbur
Vatnasportklúbbur fyrir börn fædd ´95-´00
Klúbburinn er fyrir þá sem hafa farið á námskeið, eru vanir að sigla og róa og aðra þá sem starfsfólk Sigluness telur að eigi erindi í klúbbunn. Þetta er ekki siglinganámskeið, þetta er frábær klúbbur fyrir þá sem vilja halda áfram eftir námskeiðið að sigla, róa og kynnast fleiri hliðum þess sem ævintýraheimur vatnaíþrótta býður uppá. Klúbbfélagar ráða sjálfir hvaða bátum þeir sigla og róa sem eru til taks hverju sinni, að því gefnu að veðuraðstæður fari saman við færni einstaklingsins. Klúbbfélagar eru undir eftirliti starfsfólks Siglunes. Sérfræðingar Siglunes sjá um að leiðbeina og gefa góðar ráðleggingar til að klúbbfélagar geti stöðugt bætt færni sína.
Bátar sem klúbbfélagar hafa daglega aðgang að: Laser Pico, Topper Topaz, Optimist, 7 tegundir af kayökum, opnir kayakar, kanóar og árabátar.
Klúbbastarfið er á tímabilinu 6. júní – 29. júlí*
Opið mánudaga til föstudaga kl. 13:00 – 16:00.
Verð: 1 vika 1.500 kr., 2 vikur 3.000 kr., 3 vikur 4.500 kr., 4 vikur 6.000 kr., 8 vikur (allt sumarið) 10.000 kr.
Skráning fer fram í Siglunesi í síma 551-3177 eða á staðnum.
* Því miður er uppselt í klúbbinn út sumarið 2011
Til baka