Bátaleiga
Bátaleiga fyrir alla fjölskylduna
Bátaleigan er starfrækt mánudaga - föstudaga kl. 13.00–16.00 á tímabilinu 6. júní – 29. júlí. Börn yngri en 9 ára verða að vera í fylgd með fullorðnum. Hægt er að leigja árabáta, sjö manna róðrabáta, kanóa og kajaka.
Siglingasvæði: Gestir bátaleigunnar mega eingöngu sigla á Fossvogi, siglingasvæðið nær frá bryggju Sigluness að svæði afmarkað með baujum. Bátar verða að vera sýnilegir frá húsi Sigluness.
Björgunarvesti: Allir sem leigja bát í Siglunesi verða að klæðast björgunarvesti (innifalið í verði) og fylgja björgunarvestisreglum Sigluness.
Verð 1.000 kr. fyrir árabáta, kanóa og kajaka í 1 klst.
Verð 2.500 kr. fyrir sjö manna róðrabát í 1 klst. (1 stýrir og 6 róa).
Til baka