Bláflaggið
Evrópska úrskurðarnefndin fyrir Bláflaggið 2009 hefur gefið út að Ylströndin í Nauthólsvík hafi lagt fram gögn þess efnis að baðstaðurinn uppfylli allar kröfur sem gerðar eru til baðstranda sem fá að flagga Bláflagginu. Bláflaggið er trygging baðgesta fyrir góðu umhverfi. Það er örugg vísbending um hrein og örugg baðsvæði þar sem njóta má baða og útiveru auk þess sem það á að vekja vitund almennings um mikilvægi umhverfisverndar.
Til baka